13.03.1946
Neðri deild: 86. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (820)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af till. hv. 2. þm. Reykv. — Þetta mál er tekið út af dagskrá dag eftir dag. Og það hefur ekki sætt annarri meðferð en mörg önnur mál sama eðlis. Þó að hér sé um fjárhagsatriði að ræða, þá hafa mörg mál, sem krafizt hafa fjár úr ríkissjóði, verið afgr. án þess að ganga í gegnum fjhn. Ég teldi því æskilegt, að málið fengi að ganga sinn gang án þess að það færi til fjhn.