08.10.1945
Efri deild: 3. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (905)

9. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu

Hermann Jónasson:

Aðeins nokkur orð. Ég vil segja það, að ég hef ekki gefið yfirlýsingu um, að falla ætti frá útflutningsuppbótunum. Og það er berlega sýnilegt, að þegar löggjafinn féll frá þeim, leysti hann dýrtíðarmálin aðeins á einn veg, með því að ganga á rétt einnar stéttar.