16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (932)

9. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vildi fá upplýsingar hjá hæstv. atvmrh., ef hann sæi sér fært að vera viðstaddur. (Forseti: Því horfir hv. þm. á forseta? Ég hef öðrum hnöppum að hneppa en að fleygjast um húsið í leit að hæstv. ráðh. eða öðrum). Ég bíð þá með ræðu mína, þar til öðruvísi skipast.

Umr. frestað um sinn, en var fram haldið síðar á fundinum.