30.09.1946
Efri deild: 8. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

6. mál, lýsisherzluverksmiðja

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Á þskj. 30 hefur fjhn. lýst sig samþykka frv. þessu, sem heimilar ríkisstj. að taka lán allt að 7 millj. kr. sem stofnkostnað fyrir lýsisherzluverksnriðju. Hv. 1. þm. Eyf. skrifaði undir nál. með fyrirvara, sem hann væntanlega gerir grein fyrir nú í umræðunum.