24.09.1946
Efri deild: 2. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (118)
3. mál, sveitarstjórnarkosningar
Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):
Þessi brbl., sem nú eru lögð fyrir Alþingi, voru sett vegna annmarka, sem á því þóttu vera að láta hreppsnefndarkosningar fara fram á sama degi og alþingiskosningar. Ég vil leyfa mér að mælast til, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og allshn.