03.10.1946
Efri deild: 10. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (151)

13. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla útlendinga o.fl.

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. — Eins og hv. þm. er kunnugt, var þetta frv. samþ. sem brbl. á síðasta þingi. Fjhn. hefur athugað frv. og mun mæla með því, að það verði samþ. óbreytt.

Þess skal getið, að þeir hv. 10. landsk. og þm. Str. voru ekki viðstaddir, þegar málið var afgr., og hafa því óbundnar hendur með tilliti til afgreiðslu málsins.