08.10.1946
Efri deild: 12. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í B-deild Alþingistíðinda. (164)

13. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla útlendinga o.fl.

Jóhann Jósefsson:

Á síðasta fundi hér í deildinni óskaði ráðherra, að máli þessu yrði frestað, og ætlaði að afla frekari upplýsinga í málinu, til þess að hann gæti tekið afstöðu til þess.

Nú held ég, að ráðh. sé hér í húsinu, og vil því beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, hvort ekki er hægt að fá ráðh. til þess að segja álit sitt á þessu máli nú.