08.10.1946
Efri deild: 12. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (166)
13. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla útlendinga o.fl.
Páll Zóphóníasson:
Það eru tilmæli hæstv. ráðh., að ég taki till. aftur. Eru þau tilmæli byggð á því, að ekki sé vitað, hvernig þessu máli sé háttað í nágrannalöndum okkar.
Ég skal viðurkenna, að ég er ekki svo fróður, að ég sé viss um, hvernig þessu sé háttað hjá nágrannaþjóðum okkar. Ég hygg þó, að tekjur eins og þær, sem hér er um að ræða, séu skattlagðar þar, en get þó ekki fullyrt það, en ég er viss um, að hér á landi eru þær skattlagðar, án tillits til, hvort þær eru atvinnutekjur, þegar íslenzkir menn eiga í hlut. Hitt er annað mál, að skattan. verða oft að áætla, hve miklar þær tekjur séu hverju sinni, en þær eru skattskyldar, eftir því sem í þær næst, fyrir íslenzka þegna. Og hvers vegna eigum við ekki að láta þar hið sama gilda um útlendinga? Hvers vegna á ekki að fara með þá eins og íslenzka menn hvað þetta snertir, að því undanskildu, að tvísköttun eigi sér ekki stað, en um það eru sérstakir samningar við Svíþjóð og Danmörk, að tvísköttun geti ekki átt sér stað? Ég er ekki alveg viss um, hvernig þetta er erlendis, og get þess vegna orðið við þeim tilmælum hæstv. ráðh. að draga till. mína til baka í von um, að þetta mál verði tekið upp síðar. En hver tekur það þá upp? Þetta frv., sem nú liggur fyrir, er bráðabirgðal., sem voru gefin út 12. sept. Síðan er næstum mánuður, og allan þann tíma hefur enginn í hæstv. stj. aflað sér upplýsinga um þetta efni hjá erlendum sendiherrum eða annars staðar. Hér á þingi er málið búið að vera nokkuð marga daga, og aðeins einu sinni hefur náðst nefndarfundur um það, og síðan þessari breyt. var hreyft hér, hefur n. aldrei náðst saman til að reyna að athuga málið, því síður til að reyna að fá upplýsingar um, hvernig þessu sé hagað annars staðar. Ég vil því gjarnan fá að heyra hjá hæstv. ráðh. og hv. form. n., hvort þeir ætli að beita sér fyrir að afla upplýsinga, svo að hægt verði að koma með þær breyt., sem við eiga, og ef ég heyri, að þeir ætla að gera það, þá mun ég taka till. aftur, að öðrum kosti ekki.