24.09.1946
Neðri deild: 2. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (171)

2. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):

Þessi bráðabirgðalög voru gefin út á þeim tíma, er Danir höfðu eigi möguleika á að koma til samninga. Ég legg til, að málinu verði vísað til allshn.