08.10.1946
Neðri deild: 13. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (189)

2. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Forseti (BG):

Mér hefur borizt skrifl. brtt. við 2. gr. frv. frá hv. 5. landsk. þm. og hv. þm. Snæf., svo hljóðandi: Orðin „þar til samningum er lokið“ falli niður. — Brtt. er auk þess of seint fram komin, og þarf því tvöföld afbrigði til þess að hana megi taka til meðferðar á fundinum.