09.10.1946
Efri deild: 14. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (203)
2. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur
Frsm. (Bjarni Benediktsson):
Það er rétt hjá hv. þm. Vestm. (JJós), að málið var ekki lagt fyrir utanrmn., eftir að samningar voru gerðir, heldur aðeins áður. Utanrmn. er því á engan hátt bundin af þeim.
Eins og hv. þm. hafa bent á, er þetta lítilfjörlegt, og því ekki ástæða til að tefja það. Það, sem segir í 1. gr., er aðeins það, sem Íslendingar hugsa sér og finnst eðlilegt, og framlengir aðeins þann rétt, sem áður var og Íslendingar höfðu í Danmörku. Þannig á að fara að. Nauðsynlegt er einnig að samþ. þetta, því að annars falla þessi ákvæði niður.
Varðandi 2. gr. vil ég taka það fram, að fáir utanríkismálanefndarmenn voru tregari til, að frekari réttur væri veittur Dönum og Færeyingum, en ég (JJós: Það er rétt.), og var það út því, að ég óttaðist það fordæmi, er með því væri gefið, en ég tel óeðlilegt að blanda þessu inn í deilur Dana og Færeyinga. Það, sem hér er ákveðið, er ekki síður réttindi til handa Færeyingum en Dönum. Ég get og fullyrt, að fulltrúi Færeyinga í samninganefnd Íslands og Danmerkur lagði ekki síður áherzlu á en Danir, að þessi réttur héldist. En réttur Færeyinga til fiskveiða hér við land ætti að haldast utan við deilur Dana og Færeyinga.
Ef sú verður niðurstaðan af deilu Dana og Færeyinga, að Færeyjar slitni úr sambandi við Danmörku, verður ekkí um þetta samið við Dani, og þá geta Íslendíngar engin hlunnindi fengið frá Dönum, því að þá verður að semja við Færeyinga eina. Þar sem Færeyingar eiga nú í þessari deilu við Dani, gefur það ástæðu til að láta óbreytt ástand — status quo — haldast, unz þeirri deilu er lokið, því að annars værum við ábyrgir fyrir að gripa inn í þá deilu öðrum til hjálpar.
Ef íslenzk stjórnarvöld hafa lofað dönskum stjórnarvöldum því, að þessi réttindi Færeyinga héldust, og ef alþingi vildi ekki fallast á það, væri litið svo á, að Íslendingar kipptu að sér hendinni vegna hins breytta ástands, og yrði litið á það sem beinan fjandskap við Færeyinga. En með þeim takmörkunum, sem settar voru í neðri deild, vil ég eindregið leggja til, að frv. verði samþykkt.