07.10.1946
Neðri deild: 12. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (231)
4. mál, rannsóknarstofnun í búfjármeinafræði
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. — Menntmn. hefur haft málið til meðferðar og leggur til, að það verði samþ. með 2 breyt. samkv. nál., sem liggur fyrir frá n. á þskj. 46. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta og hv. dm. á því, að í upphaflega nál. voru tvær prentvillur, en því hefur nú verið útbýtt leiðréttu. Fyrri efnisbreytingin, sem n. leggur til, að gerð verði á frv. er við 1. gr. þess eins og það kom frá Ed. við síðasta málsl. gr. bætist: og skal hún lúta læknadeild háskólans. N. taldi rétt, að skýrt væri kveðið á um þetta. Og upphaflega var það svo í frv., að tilraunastöðin að Keldum skyldi lúta læknadeild háskólans. En ég vil geta þess, að viðvíkjandi þessu atriði þá skrifaði hv. þm. A.-Sk. undir nál. með fyrirvara. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. geri grein fyrir sinni afstöðu til þessa atriðis, en ég vildi aðeins geta þessa. Svo er hér brtt., sem n. flytur við 4. gr., þ.e.a.s., n. leggur til, að í stað þess, að forstöðumaður stofnunarinnar taki laun eftir 2. launaflokki, þá taki hann laun eftir 5. fl. launalaga. N. taldi þetta í meira samræmi við launakjör annarra starfsmanna háskólans, þar sem nær allir prófessorar háskólans taka laun eftir 5. launaflokki, nema nokkrir prófessorar læknadeildar, sem eru jafnframt á launum hjá landsspítalanum, þeir taka laun eftir öðrum flokki. Samræmis vegna taldi n. ekki fært að leggja til, að forstöðumaður þessarar stofnunar tæki laun eftir hærri launaflokki en prófessorar háskólans. Um það þarf ég svo ekki að fara frekari orðum. En í samræmi við efni frv. eftir meðferð þess í hv. Ed. taldi n. rétt að breyta fyrirsögn þess og að það héti: Frv. til l. um rannsóknarstofnun háskólans í Búfjármeinafræði, í stað: Frv. til l. um tilraunastöð á Keldum. — Ég vil leyfa mér að geta þess, að í menntmn. kom fram uppástunga um það, og urðu um það nokkrar umr., að 3. gr. væri ekki með öllu æskilega orðuð. Hjá einstaka nm. kom fram ábending um það, að heimild hæstv. menntmrh. væri nokkuð rúm til þess að skipa í þessa nýju stofnun starfsmenn. Þessi heimild má í raun og veru teljast ótakmörkuð. Í frv. segir: Menntmrh. ákveður, að fengnum till. læknadeildar háskólans, hversu margir dýralæknar og aðrir sérfræðingar vinni við stofnunina o.s.frv. N. ræddi þetta atriði við landbrh., og taldi hann erfitt að breyta þessu nú og naumast ástæðu til þess. Þótt þessar raddir kæmu fram í n. um þetta atriði, þá varð að ráði að leggja ekki til, að þessu yrði breytt nú. En ég vil láta það koma fram, að mér finnst þessi heimild nokkuð rúm, eins og gr. er orðuð. N. lét sem sagt sitja við það, sem hv. Ed. hafði ákveðið og sýnist vera í samræmi við óskir og vilja hæstv. landbrh., sem að þessu máli hefur staðið.
Ég hygg svo, að af hálfu n. þurfi ekki að fara um þetta mál fleiri orðum. N. leggur til, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem hún hefur gert á því. Ég vil leyfa mér að óska fyrir hönd n., að málið gangi áfram, því að það er nauðsynlegt, að ríkisstjórnin fái þetta mál afgr. á þessu þingi vegna skilyrða, sem Rockefellerstofnunin hefur sett fyrir gjöfum, sem stofnunin á að byggjast á að verulegu leyti. Ég vona, að hæstv. forseti greiði fyrir málinu, svo að það nái fram að ganga á þessu þingi.