08.10.1946
Efri deild: 13. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (245)
4. mál, rannsóknarstofnun í búfjármeinafræði
Bjarni Benediktsson:
Ég held, að hv. 1. þm. Eyf. hafi misskilið mig. Ég neitaði ekkí, að fjármálaráðherra hefði fjallað um málið, en sagði, að hann mundi ekki gera það. Þessi þm. hefur vítt óvarlegt stjórnarfar, en þegar hann hefur átt að gera upp á milli varlegs og óvarlegs stjórnarfars, hefur hann jafnan verið óvarfærninnar megin, en ég heldur hinum megin.
Ég mótmæli því, sem þeir hv. þm., 1. þm. Eyf. og 1. þm. N.-M., halda fram, að lakari starfsmenn fengjust samkv. minni till., enda er það alveg öfugt. Góðir menn og nýtir þurfa ekkert að óttast samkvæmt minni brtt., en aftur á móti stirðbusar og aumingjar. Þeir, sem því sérstaklega bera hag hinna síðarnefndu fyrir brjósti, eru væntanlega á móti minni tillögu. En til samkomulags ber ég nú fram eftirfarandi varabrtt.: „Meginmál till. orðist svo: Menntamálaráðherra skipar, að fengnum tillögum forstöðumanns og yfirdýralæknis, dýralækni og efnafræðing til að vinna við stofnunina.“
Ef landbrh. hefur takmarkað starfsmannafjöldann, treysti ég stuðningi 1. þm. Eyf. við varatill. mína.