25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (295)
1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða
Einar Olgeirsson:
Út af ummælum hv. 3. landsk. viðvíkjandi fyrirspurn minni um þm. Alþfl. vil ég segja fáein orð. Hann sagði, að efni síðari hluta till. hans hefði aldrei verið lagt fyrir miðstj. Alþfl. Mér þætti vant um að fá að vita í því sambandi, hvort í miðstj. Alþfl. hefur aldrei verið rætt um afstöðuna til brottflutnings herliðsins af landinu. Tími hefði þó a.m.k. átt að vinnast til þess. Hv. þm. sagði, að ekki hefði farið mikið fyrir till. sósíalista um brottflutning hersins. Ég tók það fram í gær, að þegar við sósíalistar flytjum till., þá er það af því, að við vonumst til, að þær verði samþykktar. Þegar við flytjum mál, viljum við fylgja því eftir af fullri ábyrgðartilfinningu. En hingað til höfum við ekki verið öruggir um, að við mundum fá samþykkta till. um að krefjast brottflutnings hersins, en við höfum hins vegar af skiljanlegum ástæðum ekki viljað hætta á að verða þess valdandi, að slík till. yrði felld hér í þinginu. Við höfum ekki fram að þessu verið þess umkomnir að geta reiknað það út með vissu, að slík till. fengist samþykkt á Alþingi. Kannske hv. 3. landsk. þm. sé meiri herforingi en við og viti betur, hvernig háttar til í þingsölunum. Nú hefur hann að vísu fengið upplýsingar frá formanni Framsfl. um, að sá flokkur muni fylgja síðari hluta till. hans, og við sósíalistar höfum lýst yfir því, að við munum samþykkja þennan hluta till. Nú reynir á hann að sýna, að hann beri nafn með rentu og sé fær um að safna því liði, sem dugir honum til sigurs, að honum takist að fá nokkra af þm. Alþfl. með sér í herförina. Við skulum vona, að svo reynist, að hann skorti ekki sjálfan þá herforingjahæfileika, sem hann var að frýja okkur sósíalistum um.