25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (302)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Pétur Ottesen:

Mér þykir þetta bera einkennilega að, að bera till. upp í þessu formi. Hér á að fara að greiða atkv. um tillgr., sem hefst á þessum orðum: „Jafnframt felur Alþingi.“ Það verður áður að vera komið eitthvað, sem þetta getur átt við. Ég minnist þess ekki úr þingsögunni, að áður hafi verið farið þannig að.