25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Þar sem fyrri hluti till. á þskj. 9 hefur beinlínis þann tilgang í för með sér að torvelda inngöngu Íslands í bandalag hinna sameinuðu þjóða, sbr. framsöguræðu um það mál, og fyrir liggur skýlaus yfirlýsing um það, að Íslendingar vilja engar herstöðvar í landinu, segi ég nei.