25.07.1946
Sameinað þing: 5. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

Þingfrestun

forseti (JPálm):

Það mun vanta allmarga hv. þm. til þings, og vitað er, að þrír eru erlendis, hv. þm. V.-Ísf., hv. 2. þm. Eyf. og svo hv. 4. þm. Reykv., en fyrir hann er mættur varamaður, sem ekki er ákveðið, hvort mæti áfram á fundum þingsins. Einnig vil ég geta þess, að hv. þm. N.-Í sf. hefur tilkynnt, að hann gæti ekki mætt strax, en væntanlega kemur hann á næstu dögum.

Fyrir þessum fundi liggur þá ekki fleira. En hæstv. ríkisstjórn hefur óskað eftir, að hér yrði á eftir lokaður þingfundur.