05.10.1946
Sameinað þing: 11. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í B-deild Alþingistíðinda. (396)

11. mál, niðurfelling herverndarsamningsins frá 1941 o.fl.

Forsrh. (Ólafur Thors):

Hæstv. menntmrh. hefur nú lýst yfir því, að ráðh. Sósfl. muni ekki lengur sitja í núv. ríkisstj. Enda þótt hann færi fyrir þeirri ákvörðun rök, sem ég get ekki fallizt á. raskar það að sjálfsögðu ekki ákvörðun Sósfl.

Hæstv. ráðh. skýrir jafnframt frá því, að Sósfl. muni tilkynna mér þetta bréflega. Mun ég að sjálfsögðu taka það bréf til athugunar tafarlaust, er mér berst það, en síðan taka mínar ákvarðanir.