09.10.1946
Sameinað þing: 14. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér af minni hálfu og annarra þingmanna að þakka hæstv. forseta árnaðaróskir hans svo og samvinnu alla á þessu þingi og röggsamlega og viturlega stjórn þingstarfa. Óska ég honum alls góðs í framtíð og bið hv. þm. að taka undir það með því að rísa úr sætum. — [Þingheimur reis úr sætum ]