26.09.1946
Neðri deild: 3. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

5. mál, landssmiðjan

Frsm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. — Þetta mál hefur áður verið fyrir hv.d., en dagaði uppi, og varð því að gefa út brbl., sökum þess að þessari stofnun er mikil nauðsyn að hafa rekstrarlán.

N. hefur athugað þetta frv. Því miður tókst ekki að koma fundarboðum til 2 nm., en hinir nm. voru sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. við hv. deild. Ég legg því til, að það verði samþ. áfram til 3. umr.