19.12.1946
Efri deild: 39. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (104)
45. mál, menntaskólar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Ég vil leiðrétta það, að l. um menntaskóla voru ekki afgr. úr þessari d. með mínu samþ. Ég var á móti l., var á móti því að ákveða í l., að kennslustundir skyldu ákveðnar. Hv. 8. landsk. getur kynnt sér það í skjölum frá fyrra þ. Það er heldur ekki alveg rétt hjá frsm., að þetta mál, eins og það liggur fyrir, sé víðtækara en það var. Kennslustundir eru færðar úr 27 stundum niður í 24 stundir. en nú eru ákveðnar 27 stundir líka fyrir nýju kennarana. Hins vegar er það margupplýst, að þetta samkomulag er gert vegna gömlu kennaranna. Þeir álfta sig misrétti beitta, vegna þess að kennslustundum hefur verið fjölgað. Ég get fallizt á þetta sjónarmið, en ég sé ekki ástæðu til að raska þessu hlutfalli fyrir þá kennara, sem koma á eftir.
Ég vil spyrja hæstv. menntmrh., hvort ekki sé hægt að fallast á þessa lausn málsins. Það stendur í frv., að kennslumálastjórnin ákveði kennslustundir skólastjóra. Þetta er í samræmi við það, sem mér skilst að geti verið í samningnum. Frsm. segir, að eðlilegt sé, að löggjafinn ákveði þetta. Það er ekki löggjafarvaldið, sem ákveður þetta nú. Það er hæstv. ráðh., sem hefur orðið að breyta út frá l. Það hefur verið gerður um þetta samningur, og svo er óskað, já, jafnvel heimtað, að þetta sé samþykkt. Hér er hv. 8. landsk. ekki frjáls sinna gerða, því að það er ekki hægt að neita að samþykkja þetta í d. nema með því að lýsa vantrausti á verkum ráðh., sem svo mjög leggur upp úr þessu, að hann lét þau orð falla við 1. umr., að hann mundi ekki gegna embættinu, ef þetta yrði ekki samþ. Ég hef viljað líta á málið frá sömu hlið til þess að gefa ráðh. vald til þess að standa við sín orð, til þess að ganga ekki á rétt hans í þessu máli og til þess að gefa þeim, sem stjórna þessum málum, tækifæri til þess að gera tilraun til að fá kennara að skólanum. Þeir telja það úrræðið til þess að fá nægilega marga kennara að fækka kennslustundunum, þótt einkennilegt megi virðast.
Ég hygg, að ekki sé hægt að mæla á móti þessari till. minni, og vænti þess, að hæstv. menntmrh. og allur hans flokkur ásamt öðrum þm. geti verið með henni.