17.05.1947
Neðri deild: 130. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)

239. mál, þjóðleikhús

Forseti (GÞ):

Mér hefur borizt svohljóðandi till. til rökst. dagskrár frá hv. þm. S-Þ.:

„Frv. þetta er ekki tímabært, þar sem leikhúsbyggingin getur ekki orðið fullgerð á þessu ári, auk þess sem þar er mjög gengið á rétt þeirra Íslendinga, sem eiga heima utan Reykjavíkur. Deildin vísar frv. þess vegna til ríkisstj. og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Þessi dagskrártill. liggur þá einnig fyrir til umr.