17.05.1947
Neðri deild: 130. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1058)
239. mál, þjóðleikhús
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Herra forseti. Aðeins örlítil aths. við hv. 2. þm. Eyf. vegna misskilnings. Ég sagði, að þó að þetta yrði sjálfseignarstofnun, þá yrði ríkið eftir sem áður að hlaupa undir bagga. ef fyrirtækið ræki upp á sker og lenti í fjárþröng. Þess vegna er ekki að því leyti munur á hans till. Ég sé ekki ástæðu að ræða það, sem hv. þm. sagði um leikritanefnd, en vil benda á, að þar er ekki ákveðið um neinn nema þjóðleikhússtjóra.