02.05.1947
Neðri deild: 120. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)

216. mál, Bernarsambandið

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Ég sé, að frsm. menntmn., hv. þm. Snæf. (GTh). er hér ekki staddur og vildi ég því aðeins segja það fyrir hönd menntmn., að hún varð sammála um að mæla með því, að frv. yrði samþ. óbreytt, og hefur í einu og öllu fallizt á þær röksemdir, sem fram koma í frv.