31.10.1946
Efri deild: 7. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (119)

23. mál, gjaldaviðauki 1947

Gísli Jónsson:

Ég bað um upplýsingar um þetta mál í gær, og þar sem þetta er veigamikið mál og ég hef ekki fengið þær upplýsingar, er ég fór fram á, sé ég mér ekki fært að greiða atkv. og sit hjá. Frv. afgr. til Nd.