28.11.1946
Neðri deild: 28. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (1312)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég leyfi mér hér með að bera fram brtt. við 2. gr. frv., svo hljóðandi: „Við 2. gr. Greinin orðist svo: 2. mgr. 9. gr. laganna hljóði svo: Lög þessi falla úr gildi 20. des. 1946.“

Ég vil svo ekki orðlengja þetta frekar en álít heppilegra, að viðskiptaráðið láti af störfum fyrir nýár og Alþingi hafi ekki möguleika til neinnar undanlátssemi við sjálft sig. Ég vil svo biðja hæstv. forseta að leita afbrigða.