29.11.1946
Efri deild: 24. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Bernharð Stefánsson:

Ég get að vísu játað það, að þessi gr. á tæplega heima í frv., því það er borið fram til þess að framlengja 1., eða það skilst mér vera megintilgangur frv., en á hinn bóginn finnst mér þetta ekki það stórvægilegt atriði, að ég sjái ástæðu til þess að hrekja málið til Nd. vegna þess atriðis, og jafnvel kannske þá að setja það í þá hættu, að það öðlist ekki gildi á þeim tíma, sem það þarf að öðlast gildi, og segi því já.