29.11.1946
Efri deild: 24. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1334)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Hannibal Valdimarsson:

Ég tel það raunar rétt, að eðlilegra hefði verið, að eingöngu hefði verið um framlengingu laganna að ræða, en þar sem sú breyting, sem hér hefur slæðzt inn í, er ekki stórvægileg og mér virðist hún vera fremur til bóta, segi ég já.

2.–3. gr. samþ. með 13 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 13 shlj. atkv.