29.11.1946
Efri deild: 25. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1234 í B-deild Alþingistíðinda. (1336)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Gísli Jónsson:
Herra forseti. 1. gr. þessa frv. hefur nú verið samþ. við 2. umr., og það hefur ekki verið gefinn tími til þess að athuga þetta frv. í n. né til þess að bera fram við það brtt. Ég mun því ekki tefja málið hér á þessu stigi, þar sem það er einnig hægt að koma fram með till. til breyt. á l. síðar. Ég mun því sitja hjá við atkvgr.