17.12.1946
Efri deild: 35. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1340)

118. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur 1947

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Um leið og ég þakka hv. fjvn. og form. hennar, sem flytur þetta frv., fyrir undirtektir þeirra við málið, vil ég leyfa mér að beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann haldi næsta fund að loknum þessum fundi, til þess að frv. nái fram að ganga, og greiði fyrir því, að frv. geti komizt sem fyrst til hv. Nd., helzt í dag.