21.12.1946
Neðri deild: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Hallgrímur Benediktsson:

Herra forseti. Það var aðeins í sambandi við ræðu hv.1l . landsk. þm. Hann vék því að mér í sambandi við bifreiðainnflutninginn og sagði, að sumir seldu bifreiðarnar með markaðsverði. Ég mótmæli þessu, því að innflytjendur selja í sambandi við Viðskiptaráð, og vildi ég skjóta þessu hér fram. En að öðru leyti vil ég taka það fram, að það má vel vera, að ég hafi ekki svo mjög bundið mig við þetta frv., en þó held ég, að allt, sem ég hef sagt, hafi verið í sambandi við þessar umr., og tel ég mig hafa svarað án persónulegra ádeilna.