21.12.1946
Neðri deild: 47. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Bjarni Ásgeirsson:

Þar sem nú svo stendur á, að betra er að gera neyðarráðstafanir en að ekkert sé gert, þá mun ég greiða atkv. með frv., en legg áherzlu á, að í þessum málum þarf að verða stefnubreyt. í framtíðinni. En með þeim fyrirvara, er ég í upphafi tók fram, segi ég já.