21.12.1946
Efri deild: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í B-deild Alþingistíðinda. (1454)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Forseti (GÍG) :

Framsfl. hefur æskt þess, að hv. þm. Str. (HermJ) taki sæti í fjhn. þessarar hv. d. í þessu máli í stað hv. 1. þm. Eyf. (BSt), sem er farinn heim með leyfi forseta, og hef ég auðvitað orðið við þessari ósk og samþ., að hv. þm. Str. taki sæti í fjhn.

Það er of skammt liðið frá 3. umr. í Nd., og mun ég leita afbrigða fyrir málinu.