22.12.1946
Neðri deild: 48. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)
124. mál, bátaútvegurinn o. fl.
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :
Herra forseti. Ég vil aðeins staðfesta það, sem ég að vísu drap á við framsögu þessa máls, þegar ég talaði þá um venjulega pakkningu, að fyrir okkur hefur það vakað, að með kr. 1,33 tryggingunni væri átt við sams konar umbúðir og 98 aura tryggingin gilti um upphaflega.