29.11.1946
Neðri deild: 29. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1305 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)

34. mál, sala verzlunarlóðarinnar á Sauðárkróki

Frsm. (Jóhann Hafstein) :

Ég vildi aðeins taka það fram út af orðum hv. 1. þm. Skagf., að alls ekki er ætlazt til, að Sauðárkróki verði sett nein sérstök skilyrði, heldur yrðu takmarkanir um eign landssvæða settar í almenn lög.