02.12.1946
Neðri deild: 30. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1326 í B-deild Alþingistíðinda. (1580)
72. mál, byggðasöfn o. fl.
Frsm. (Sigurður Bjarnason) :
Herra forseti. Menntmn. hefur rætt þetta frv. og sent þjóðminjaverði til umsagnar, og barst n. skrifl. umsögn hans, og leggur hann til, að frv. verði samþ., og taldi nauðsynlegt, að reglur þær, sem í frv. felast, verði lögfestar. Aðalatriðið er, að stefnt er að því, að þeim fornleifum, sem þjóðminjavörður telur ástæðu til að varðveita, skuli haldið við á kostnað ríkisins. Enn fremur er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi nokkurn styrk til að reisa byggðasöfn. Menntmn. var sammála um að mæla með, að þetta frv. verði samþ. Við 7. gr. flutti n. brtt., og er lagt til, að fellt sé niður ákvæði um viðurlög. Taldi hún ekki ástæðu að hafa refsiákvæði í þessu frv. og væri það óeðlilegt og færi betur, að það væri fellt niður. Ekki er ástæða að reifa þetta meir. Málið er flutt glögglega af 1. flm. og liggur því ljóst fyrir. Ég vil svo leyfa mér að óska fyrir hönd menntmn., að málinu verði vísað til 3. umr.