30.01.1947
Neðri deild: 62. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1620)

141. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Með því að mér er kunnugt um, að bæði í þeim tilraunum, sem ég gerði til myndunar ríkisstj., sem og í þeim tilraunum, sem nú standa yfir til myndunar ríkisstj. undir forsæti form. Alþfl., er verið að semja um nýja skipan á þessum málum, en hins vegar er hér um að ræða bráðabirgðaframlengingu á þeim l., sem lengi hafa um þetta gilt, þá segi ég, án hliðsjónar af efnishlið málsins, nei.