30.01.1947
Neðri deild: 62. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1622)

141. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Skúli Guðmundsson:

Ég hef áður í umr. um þetta mál lýst því, að ég væri því samþykkur, að félög fengju rétt til þess að flytja inn vörur, sem þau þurfa til framleiðslu sinnar. En með því að ég tel orðalag á 2. málsgr. í þessari brtt. ekki svo skýrt sem það ætti að vera og gæti valdið misskilningi um framkvæmdina og með því að ég tel einnig, að það væri eðlilegt, að samhliða væru sett í l. ákvæði um, að önnur samvinnufélög fengju rýmri rétt til innflutnings heldur en verið hefur, og ég vænti þess, að þessi ákvæði verði tekin upp í ný l., segi ég nei.