12.12.1946
Neðri deild: 36. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

108. mál, fólksflutningar með bifreiðum

Frsm. (Gísli Sveinsson) :

Herra forseti. Samgmn. hefur fallizt á að flytja þetta frv. Samgmn. óskar þess enn fremur, að þetta mál verði tekið nánar til yfirvegunar milli umr. Ég leyfi mér því að mælast til, að þetta mál verði afgr. til 2. umr. án frekari framsögu, en við 2. umr. verður nánari grein gerð fyrir málinu.