28.02.1947
Efri deild: 82. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

66. mál, menntun kennara

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Í tilefni af ræðu hv. 3. landsk. vil ég taka það fram, að ég ber ekki fram mál til hrossakaupa og til að tryggja mér frið, heldur þegar þau eru þess virði, að þau séu borin fram. Ég vil því heldur sjá þau falla í eina gröf en að kaupa mér fylgi með hrossakaupum.