07.03.1947
Efri deild: 87. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1398 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)

77. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir ábendingu hv. 7. landsk. Það er náttúrlega ekki á valdi fjvn. að breyta þeirri reglugerð. Mun ég sem form. þeirrar n. setja mig í samband við ráðh., sem hefur með þessi mál að gera, og ræða þessa nýju hugmynd við hann í sambandi við þessi mál.