11.03.1947
Neðri deild: 90. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1398 í B-deild Alþingistíðinda. (1828)

191. mál, einkasala á tóbaki

Ásgeir Ásgeirsson:

Herra forseti. Fjhn. fékk þetta frv. sent í dag frá hæstv. fjmrh. Við höfum haldið fund um málið, og var þar ákveðið, að meiri hl. n. skyldi taka að sér flutning málsins, en í meiri hl. eru 4 af fimm nm. — Að svo mæltu vil ég gefa framsögu í málinu í hendur hæstv. fjmrh.