16.12.1946
Neðri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (1853)

111. mál, Háskóli Íslands

Frsm. (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. Á síðasta vori ritaði háskólaráð hæstv. menntmrh. og fór fram á, að gerð væri breyt. á einu ákvæði háskólalaganna. Hæstv. menntmrh. ritaði þá menntmn. um að flytja málið á Alþ., en henni vannst ekki tími til þess þá. En nú er málið hér flutt. — Um frv. þetta hef ég ekki fleiri orð, en vísa til grg., sem því fylgir.