10.10.1946
Sameinað þing: 1. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

Forseti Íslands setur þingið

Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Áki Jakobsson, þm. Siglf.

2. Ásmundur Sigurðsson, 8. landsk. þm.

3. Barði Guðmundsson, 9. landsk. þm.

4, Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

5. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

6. Bjarni Benediktsson, 10. landsk. þm.

7. Björn Kristjánsson, þm. N.--Þ.

8. Brynjólfur Bjarnason, 4. landsk. þm.

9. Einar Olgeirsson, 2. þm. Reykv.

10. Eiríkur Einarsson, 2. þm. Árn.

11. Emil Jónsson, þm. Hafnf.

12. Eysteinn Jónsson, 1. (vara)þm. S.-M.

13. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

14. Garðar Þorsteinsson, 2. þm. Eyf.

15. Gísli Jónsson, þm. Barð.

16. Gísli Sveinsson, þm. V-Sk.

17. Guðmundur Í. Guðmundsson, 7. landsk. þm.

18. Gunnar Thoroddsen, þm. Snæf.

19. Gylfi Þ. Gíslason, 4. þm. Reykv.

20. Halldór Ásgrímsson, 2. þm. N.--M.

21. Hallgrímur Benediktsson, 3. þm. Reykv.

22. Helgi Jónasson, 1. þm. Rang.

23. Hermann Guðmundsson, 11. landsk. þm.

24. Hermann Jónasson, þm. Str.

25. Ingólfur Jónsson, 2. þm. Rang.

26. Jóhann Hafstein, 7. þm. Reykv.

27. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

28. Jón Pálmason, þm.a.-Húnv.

29. Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf.

30. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.

31. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

32. Katrín Thoroddsen, 2. landsk. þm.

33. Lárus Jóhannesson, þm. Seyðf.

34. Lúðvík Jósefsson, 2. þm. S.–M.

35. Ólafur Thors, þm. G.–K.

36. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N.-M.

37. Páll Þorsteinsson, þm.a.-Sk.

38. Pétur Magnússon, 1. þm. Reykv.

39. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

40. Sigfús Sigurhjartarson, 6. þm. Reykv.

41. Sigurður Bjarnason, þm. N.-Ísf.

42. Sigurður Guðnason, 8. þm. Reykv.

43. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

44. Sigurður Kristjánsson, 5. þm. Reykv.

45. Sigurjón Á. Ólafsson, 1. landsk. þm.

46. Skúli Guðmundsson, þm. V-Húnv.

47. Stefán Jóh. Stefánsson, 5. landsk. þm.

48. Steingrímur Aðalsteinsson, 6. landsk. þm.

49. Steingrímur Steinþórsson, 1. þm. Skagf.

50. Þorsteinn Þorsteinsson, þm. Dal.

Voru framantaldir þingmenn allir á fundi.

Ókomnir voru til þings:

1. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

2. Hannibal Valdimarsson, 3. landsk. þm.

Forseti Íslands setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, kom forseti Íslands, Sveinn Björnsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls.

Forseti Íslands (Sveinn Björnsson): Í ríkisráði í gær var gefið út svolátandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi 1948 skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1946.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett, eftir að guðsþjónusta hefur farið fram í dómkirkjunni, og hefst hún kl. 13,30.

Ritað í Reykjavík 9. október 1946.

Sveinn Björnsson.

/Ólafur Thors.

Forsetabréf um að reglulegt Alþingi 1946 skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1946.“

Samkvæmt bréfi því, er ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett. Frá endurreisn Alþingis fyrir rúmum 100 árum er þetta 81. samkoma þess, en frá því er það fékk aftur í hendur löggjafarvald fyrir 72 árum, er þetta þing hið 66. í röðinni, en 49. aðalþing.

Ég vil biðja alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum sínum.

[Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra (ÓTh) mælti: „Lifi Ísland“. — Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi, þar til kosinn hefur verið forseti sameinaðs Alþingis.

Gekk forseti Íslands síðan út úr salnum. Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn. Kvaddi hann sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Sigurð Kristjánsson, 5. þm. Reykv. og Skúla Guðmundsson. þm. V.-Húnv.