27.03.1947
Efri deild: 101. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1452 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)
132. mál, dýralæknar
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Undir nál. meiri hl. landbn. hef ég skrifað með fyrirvara, eins og sést á þskj. 554. Ég held, að betur þurfi að að búa, sérstaklega ef skipta á landinu í ákveðin dýralæknisembætti, en það væri æskilegt í samræmi við búnaðarsambönd landsins, en það vannst ekki tími til þess. En þrátt fyrir þetta, þá tel ég brtt. hv. þm. N-M. til bóta. Sömuleiðis er ég sammála þm., N-M. varðandi 3. brtt. á þskj. 558 b-lið, um að styrkja sýslu- og bæjarfélög í umdæmi til þess að kaupa sér dýralæknisþjónustu, heldur en það fyrirkomulag, sem lagt er til í frv. á þskj. 300. Hins vegar er ég ekki viss um, hvort skylda á dýralækna til þess að þjóna lausum héruðum, eins og lagt er til í fyrra tölulið 3. gr.
Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta nú.