03.02.1947
Neðri deild: 65. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1464 í B-deild Alþingistíðinda. (2065)

147. mál, vegalög

Pétur Ottesen:

Eins og ég gat um við 1. umr., þá ætlaði ég að bera fram brtt. við frv., en ég get vel fallizt á að bíða með að ræða þær, þangað til 3. umr. fer fram, og get því fallizt á till. hv. form. samgmn. Ég vildi leyfa mér að fara fram á það við hann, að hann athugi brtt. mínar, og það væri mjög æskilegt, ef n. féllist á ýmsar af þeim breyt., sem ég vildi gera láta við frv.