15.04.1947
Efri deild: 118. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (2123)

147. mál, vegalög

Páll Zóphóníasson:

Ég vil benda hæstv. dómsmrh. á það, að þegar mál þetta var til 2. umr. í d., benti ég á, að í l. væru prentvillur, sem þyrfti að athuga, og óskaði ég eftir, að n. tæki þetta til athugunar. Það gerði n. eða forseti hins vegar ekki. Nú þætti mér gaman að vita, hvort hv. þdm. vilja fella þessa brtt. og halda þannig prentvillunum. Ég segi já.