27.02.1947
Efri deild: 81. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (220)

24. mál, tekjuskattsviðauki 1947

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. — Það er aðeins örstutt aths. út af ummælum hv. 1. þm. Eyf. um meininguna í yfirlýsingu minni áðan, að ég teldi nú ekki lengur ástæðu til að leggja þennan skatt á. Það sagði ég aldrei, og gæti fremur verið ástæða til að bæta við skatta á sumum sviðum, en ég vil aðeins, að þessi mál verði samræmd í heild.