07.11.1946
Efri deild: 11. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1571 í B-deild Alþingistíðinda. (2335)

48. mál, innlend endurtrygging, stríðsslysatrygging skipshafna o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Það er misskilningur hjá frsm., að ég sé fyrirfram á móti þessu máli. Og þó að ég sé ekki eins sannfærður um, að sérhvert atriði málsins sé það bezta, eins og frsm., þá er ekki þar með sagt, að ég leggist á móti málinu. Annars á ég kost á að láta í ljós skoðanir mínar á málinu í hvorri n., sem er, og geri því ekki að kappsmáli í hvorri n. málið lendir. Ég læt allt það, sem þm. sagði í minn garð varðandi málið, niður falla að þessu sinni, tel það ekki tímabært og óviðeigandi að deila á slíkum grundvelli.