27.03.1947
Efri deild: 101. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1627 í B-deild Alþingistíðinda. (2492)

204. mál, brúargerðir

Fram. (Eiríkur Einarsson) :

Herra forseti. Ég vil aðeins segja til staðfestingar því, sem hv. 1. þm. N-M. tók fram, að ég veit, að margir hv. þm. hafa horfið frá því að bera fram slíkar brtt. eins og hv. þm. tók aftur, og það skiptir mjög litlu máli, hvort það stendur í brúal. eða ekki, þar sem það almenna ákvæði er að komast í l., að brýr á sýsluvegum, sem séu 10 m eða lengri, skuli kostaðar að öllu leyti fyrir fé úr ríkissjóði, því að ég tel, að þetta ákvæði verði skilið á rúman hátt fremur en þröngan.